L Á V A R Ð A R OG R I D D A R A R - SEYÐISFIRÐI
ÝMSAR MYNDIR GSF
17.11.2006 21:55:02 / lordinn

N'y myndasíða

Hæ!

Ég  var að setja upp nýja myndasíðu en slóðin er ef þið viljið kíkja; http://www.123.is/bson/  en þar er ég byrjaður að setja inn golfmyndir.


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 21:33:16 / lordinn

Myndir Hesperia Alicante 2006

Haldið þið að ég hafi ekki loksins komið inn myndum úr ferðinni. 

Slóðin er; http://lordarogriddarar.myphotoalbum.com

Þið hafið vonandi gaman af en ég veit að það eru til margar fleiri myndir t.d. var Jónsi með um 200 stk. í vélinni sinni sem við skoðum síðar, höldum auðvitað myndakvöld fyrr en seinna....

Vonandi sjáum við síðan allan austfirska hópinn hér á Hagavelli í sumar, golfararnir Bjarni, Laufey, Emil, Siggi, Eysteinn og Þór verið þið velkomin (og að sjálfsögðu eru betri helmingarnir velkomnir með, alltaf heitt á könnunni) ;).

Sumarið lætur aðeins bíða eftir sér en það kemur 8)!!!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 13:17:27 / lordinn

Hesperia Alicante

 Netsambandi hefur verið ansi dapurt en nú sýnist mér að við séum að komast í ágætt samband.  Munum reyna að setja inn myndir eins fljótt og mögulegt er. 

Annars er allt fínt að frétta af okkur, hótelið stórglæsilegt og völlurinn hér er virkilega flottur, bæði brautir og flatir sem eru eins og dýrustu teppi! 

Stórmót Lávarða verður á morgun á Alicante vellinum, en þar verða rúmlega 20 golfarar sem takast á á Spænsku grasi, það verður örugglega spennandi!!!!!

Set inn myndir í leið og hægt verður, en á meðan kærar kveðjur til allra heima frá okkur Alicante golfurum 8), meira seinna!

Bless í bili .....


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 20:08:36 / lordinn

Framvarðasveitin

Okkar frábæru félagar Óskar Friðriks og Unnar Jóseps leggja í hann suður á morgun og fljúga út á miðvikudagsmorguninn! 

Þeir verða allan tíma á Hesperia hótelinu en ég veit að þeir eru að velta fyrir sér að koma til okkar 3. maí og spila með okkur Real De Faula völlin við Bali hótelið á Benidorm.

Við  sem leggjum í hann 1. maí óskum þeim félögum góðrar ferðar og munum örugglega hafa samband við þá í lok vikunnar og tékka á aðstæðum!

8)

PS: Ég býð líka stýrimanninn og skipstjórann á Gullver vekomna í land eftir fína veiðiferð, næsti túr hjá þeim verður golfferð til Alicante í góðum hóp sjóara og landkrabba, geri ráð fyrir að sjá amk. stýrimanninn í kaffi í fyrramálið, gott væri ef þú kipptir kexi eða köku úr skápnum hjá Hönnu til að taka með, ég skal sjá um kaffið ;)!


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 14:35:34 / lordinn

Er að koma sumar???

Golf - Lávarðar og riddarar óska öllum lesendum síðunnar;

GLEÐILEGS 8) GOLF - SUMARS 8) !!!

Þökkum fyrir veturinn!


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 20:25:51 / lordinn

Hótel Keflavík

Nokkrir okkar eru búnir að bóka sig á Hótel Keflavík þann 30. apríl en við  byrjuðum ferðina þar í fyrra, það var alveg stórfínt, fínn kvölverður á góða austurlenska veitingastaðnum, hvað annað fyrir okkur sem komum að austan ;).  Það er svo þægilegt að gista í Keflavík, laufléttur morgunverður og síðan í rólegheitum upp á flugvöll!

Annars er heimurinn svo lítill, Davíð aðstoðarhótelstjóri á hótelinu er hörku golfari, rétt fyrir ofan núllið eða með tæpa 2 í forgjöf.  Davíð sagði mér að hann hefði spilað Alicante völlinn fyrir reyndar nokkuð löngu síðan en hann  lét virkilega vel af honum.  Ég verð nú að segja að Þjónustan og viðmót þeirra sem hótelinu stýra er alveg til fyrirmyndar, frábært verð á gistingu fyrir okkur Seyðfirska lorda og riddara, engin spurning um að við eigum oft eftir að gista á þessu fallega hóteli.

8) Það styttist félagar í sól, golf, gufu, golf, golf, golf .............


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 15:12:16 / lordinn

Jón Magnússon, lávarður

Já, nú er það yfir - lordinn okkar Jón Magnússon sem kynntur verður á síðunni okkar,  annars þarf víst lítið að kynna þennan dreng, hann þekkja allflestir sem þekkja til á Seyðisfirði.

Jón Magnússon, forgjöf 25,2.

Jónsi Magg er algerlega "orgínal" Seyðsfirðingur og er hreint út sagt frábær félagi eins og hinir lordarnir okkar. Hann fæddist hér í firðinum fagra þann 21. september 1930 og er fyrir löngu búinn að sanna það fyrir okkur félögunum að aldurinn er afstæður og golfið gerir mann ungan!  Áður en Jónsi snéri sér að golfinu þá vann hann 43 farsæl ár hjá RARIK, í mörg ár sem stöðvarstjóri  hér á Seyðisfirði.  Jónsi er orðin flottur golfari en það sem merkilegt er að hann hefur aðeins stundað íþróttina í rétt rúm 5 ár:!: 

Helstu áhugamál fyrir utan golfið eru skíði, sund og varðveisla gamalla hluta en m.a. hefur hann verið einstaklega duglegur að vinna að varðveislu og auka hróður Fjarðarselsvirkjunar.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 21:33:46 / lordinn

Djúpivogur

Ekki hafa viðbrögðin verið mikil við þeirri hugmynd að fara á Djúpavog að spila, allavega ekki hér á síðunni. 

Það ætla samt nokkrir golfarar að skoða laugardaginn ef mögulegt verður vegna veður og fl..

Gleðilega páska!


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 21:16:41 / lordinn

Golfferð á Djúpavog um páska???

Þeir félagar Páll formaður og Orri stýrimaður eru líka með þessa flottu hugmynd um að  við GSF félagar smellum okkur í golfferð á Djúpavog nú um páskana!  Það er allt útlit fyrir að veðrið verði fínt og því tilvalið að skreppa!  Sveinbjörn Orri er búinn að hafa samband við jafnaldra minn, skólabróður og félaga okkar Orra þann góða dreng, Kristján Guðmundsson og eins og venjulega þá erum við boðin velkomin á Djúpavog og Hamarsvöll!

Hugmyndin er annað hvort að fara á okkar bílum eða það sem er ennþá betra að fá Berg eða bílinn hans og góðan bílstjóra eins t.d. Pál Madalascanas bílstjóra (Addi og Orri verða væntanlega með kompásinn) til að skutla okkur á Djúpavog.  Leggið nú höfuðin í bleyti varðandi tímasetningu og gefið "komment" hér fyrir neðan eða til hliðar í skoðanakönnun um hvort þið nennið.  Þið hafið gott af því að virkja aðeins pikk puttann og skrifa smá texta.  Þeir sem ekki vita það þá þurfið þið að staðfesta textann með tölu- og bókstöfum sem sjást í glugga fyrir ofan skilaboðin. 

Allir með á hinn langt flottasta staðinn á Íslandi, Djúpavog, fín upphitun fyrir golfferðina!! 8)


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 20:57:34 / lordinn

Ómar Bogason, riddari

Já, þá er komið að næsta versi enda best að klára það bara strax að skrifa um hann þennan!

Ómar Bogason, forgjöf 10,4.

Þarna er nú ekki um að ræða "orgínal" Seyðfirðing heldur Djúpavogsbúa sem rataði hingað í byrjun árs árið 1999.  Pilturinn ungi fæddist í paradísinni Djúpavogi 30. júní 1960 og er því óðum að nálgast það að verða fullorðinn.  Ómar ólst upp í stórum hópi systkyna og þurfti því á stundum að berjast fyrir tilverunni t.d. urðu stundum átök um hver bræðranna fengi styrtluna á ýsunni sem þótti og þykir enn mikið lostæti, er að undra að maðurinn sé frekur!  Golfiðkun hófst á Djúpavogi með litlum árangri en það var ekki fyrr en að golfarinn komst í fjallloft Seyðisfjarðar að eitthvað pínulítið fór að ganga.  Áhugamálin eru mörg fyrir utan golfið s.s. fótbolti, ferðalög, ljósmyndun, tónlist og auðvitað bara að lifa lífinu lifandi og með bros á vör :haha:.


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 20:35:45 / lordinn

Vorið er komið og ........

Jæja, snjórinn byrjaður að bráðna loksins þó enn sé þó nokkuð langt í land að hægt verði að spila þá er þetta þó í áttina.  Það verður spennandi að heyra spá stýrimannsins okkar góðkunna um hvenær verði hægt að ganga um hagann snjóléttan og berja það hvíta sem við viljum hafa á golvellinum þ.e. golfkúluna.  Það má greinilega merkja óþolmæði eftir grasinu  hjá strákunum okkar þeim Jónsa og Óskari, enda hafa þeir hingað til ekki talið eftir sér að spila í frosti en það eina sem stoppar þá er auðvitað snjórinn en þetta er að koma piltar 8).......

Annars ætla ég að halda áfram að setja upp örstuttar upplýsingar um þá lávarða og riddara sem hópinn skipa þannig að nú óska ég eftir örstuttum ævisögum, þið vitið hvar skrifborðið mitt er.

Bless í bili


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 09:16:04 / lordinn

Óskar Friðriksson, lávarður

Já, nú er komið að því að kynna allavega nokkra af þeim sem verða með í golfferðinni 1. maí og að sjálfsögðu verður byrjað á Lávarði:

Óskar Friðriksson, lávarður, forgjöf 25,4. 

Óskar er fæddur á Siglufirði, 17. nóvember 1938.  Þó svo að strákurinn sé fæddur á Siglufirði þá pakkaði hann ungur niður í golfpokann sinn og flutti til Seyðisfjarðar árið 1945 okkur hinum til mikillar ánægju.  Óskar "hafnarvörður" eins og við þekkjum hann best starfaði  eins og nafnið gefur til kynna lengi sem hafnarvörður eða frá 1. ágúst 1974 og er loksins þessa dagana að gefa hvítu kúlunni meiri tíma en áður enda er hann dugnaðarforkur drengurinn.  Vinur okkar Óskar hefur stundað golf í um 15 ár en áhugamál hans fyrir utan golfið eru m.a. veiðar, fluguhnýtingar og gönguskíði svo eitthvað sé nefnt.    


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 17:14:00 / lordinn

Ný skoðankönnun, niðurtalning hafin!

Já, nú er búið að setja inn niðurteljarann fyrir ferðina enda styttist óðum í að Seyðfirskir og aðrir austfirskir golfarar fari að lemja iðagrænt grasið á Hesperia Alicante golfvellinum með bros á vör og sól á skalla. 

Það er komin í loftið getraun og þess vegna upplýsi ég að sjálfsögðu ekki lesendur um hvar þessi Alicante golfvöllur er í heiminum en get samt staðfest að hann er ekki á Ísafirði, Seyðisfirði eða í Grímsey og nb. það er ekki golfvöllur á barnum í Leifsstöð ;).  

Annars væri gaman að fá tillögu að getraun eða skoðankönnun frá ykkur og ég hvet alla þá sem geta að kvitta í gestabókina!!!!

Kveð að sinni 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 21:28:23 / lordinn

Myndir af Alicante vellinum

 Er rétt að byrja að telja niður eins og ég var búinn að lofa enda er ekki komin tími á að fara að kíkja á völlinn, þetta styttist!  Ég var svo heppinn að sjá myndir sem Þorsteinn Hallgrímsson stór golfari og fararstjóri hjá Sumarferðum tók af Real de  Faula vellinum á Benidorm.  Það voru engar myndir af Alicante vellinum þannig að ég hafði samban við Þorstein og það er óhætt að segja að þarna er alvöru fararstjóri, hann gróf í snarhasti upp myndir sem hann átti af vellinum og smellti á síðuna sína, algjör snilld.  Það er verst að Þorsteinn verður ekki niðurfrá í byrjun maí en hann mætir bara á Lávarðamótið til okkar í haust í staðinn.  Slóðin inn á síðuna hans Þorsteins er; http://th.gandalfur.is/

Kíkið endinlega á þetta en þetta er alvöru völlur og brautirnar breiðar þannig að Palli þarf að vanda sig extra vel ef hann ætlar að ná því að hitta í einhverja sundlaugina eins og á El Rompido 8).

Bless í bili félagar!

PS: Það eina sem hægt er að finna að skrifum  Þorsteins er að hann heldur því fram að Arsenal hafi unnið mína menn í Liverpool sannfærandi ;).  Ástæðan fyrir því að svo ótrúlega vildi til að við töpuðum þessum leik var að Gerrard gleymdi því eitt augnablik á hvort markið hann var að spila þegar hann sendi fallega sendingu í gegnum vörnina ætlaða á Fowler vin okkar en þið vitið hvað skeði, en þetta er nú bara fótbolti  ......


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 22:40:46 / lordinn

Vetur í bili

Já, það er vetur eins og er en mikið líður þetta nú tíminn samt hratt, komin 10. mars, rétt um einn og hálfur mánuður í golfferðina.  Ég er að huga um að fara bráðum að setja smá upplýsingar um golfvöllinn og fleira frá Alicante, fara að telja niður. 

Bless í bili


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8